Sumarhús á spáni - Orlofshús á spáni - Hús á spáni - Leiguíbúðir á spáni - Íbúðir til leigu á spáni  
Spanish | English | Íslenska
 

Sértilboð


Hús til sölu á spáni

nú er rétti tíminn til að kaupa
allt að 50% afsláttur
www.spanarhus.is  


Hús merkt * veita afslátt
til Félaga VM

Cabo Roig

  • Einbýli
  • 3
  • 102

  • Verð fyrir vikuna
  •  
  • 450€
  • 640€


Sækja um leigu

Fylltu út upplýsingar um þig og tímabil hér að neðan.

  • Upplýsingar
  • Tímabil
  • Skoða lausa daga

Stórglæsilegt einbýlis hús í nýju hverfi í Cabo Roig rétt fyrir utan Torrevieje.

Húsið er hið glæsilegasta jafnt utan sem innan og er á þremur hæðum. Stofa, baðherbergi m/sturtu, eldhús og eitt svefnherbergi er á fyrstu hæðinni. Út frá stofunni er hægt að opna út í stóran garð. Í eldhúsinu er hurð út í bakgarðinn og hægt er að ganga beint út í sundlaugargarðinn sem er stórglæsilegur. Á annari hæð eru tvö svefnherbergi og eitt baðherbergi, út frá báðum svefnherbergjunum eru svalir. Á 3 hæðinni eru útsýnis svalir með sjávarútsýni, sést alla leið til
La Manga. Garðurinn snýr til suðurs. Einnig er bílastæði í sameiginlegri bílgeymslu.
Gott skipulag og vel rúmt fyrir 6 manns, en þess ber að geta að 8 geta hæglega sofið í húsinu. Mjög góður svefn sófi er í stofu sem rúmar tvo. Og ef ungabarn er með í ferð þá fylgir einnig mjög gott ferðarúm sem hægt er að koma fyrir í hjónaherbergi. Mikið er lagt upp úr að væntanlegir gestir fái fyrsta flokks rúm. Það er mikilvægt að geta fengið góðan svefn og verið úthvíldur og því var ekkert sparað í þeim efnum. Sérsmíðaðar innréttingar eru í öllum fataskápum svo hægt sé að hafa allt í röð og reglu. Af helstu græjum sem fylgja í húsinu ber að nefna: Sjónvarp með öllum helstu stöðvum fyrir allan aldur (Sky sport fyrir fótboltaunnendur). Hljómflutningsgræjur með dvd, tengi fyrir iPod, og cd spilari, þráðlaus nettenging er í öllu húsinu. Þú getur meira að segja horft á RÚV og fylgst með íslenskum fréttum.  Uppþvottavél, eldavél, blandari, brauðrist, kaffivél, strauborð og hárblásari. Þvottavél er úti í garði og snúrur, útigrill og fimm gæða sólbekkir. Loftkæling er í húsinu og öryggiskerfi. Húsinu fylgir einkasundlaug sem er mjög góður kostur. Einnig er sér útisturta við hliðina á einkasundlauginni. Garðurinn er snyrtilegur og allur flísaður. Tvö tré eru í garðinum, appelsínu og sítrónutré. Staðsetningin er góð þar sem stutt er í alla mögulega þjónustu. Strönd, markaðir, matvörubúðir, barir, bankar, apótek, og fl.. Fyrir golfspilara þá eru um 20 vellir í 5 mín. til 30 mín akstursfjarlægð. Fyrir fótboltaunnendur þá er hægt að sjá þá stóru í leik á móti Real Murcia, en þeir unnu sér sæti í efstu deild (ca. 30 mín akstur). Aquamarina er rétt hjá en þar eru fullt af góðum veitingastöðum. Verslunarmiðstöðvar og úrval skemmtigarða eru í næsta nágrenni. Njóttu þess besta sem Spánn hefur upp á að bjóða á eigin vegum.

Staðfestingargjald er 20% leiguverðs sem greiðist við bókun og er óafturkræft. 
Greiða þarf leigu að fullu eigi síðar en einum mánuði fyrir upphaf leigutímans.
Þrif íbúðar við brottför eru ekki innifalin í verði.


Sjá kort af Cabo Roig Spain 

Sumarhús, orlofshús og leiguíbúðir á Spáni, íbúðir til leigu á spáni. www.spann.is