Sumarhús á spáni - Orlofshús á spáni - Hús á spáni - Leiguíbúðir á spáni - Íbúðir til leigu á spáni  
Spanish | English | Íslenska
 

Sértilboð


Hús til sölu á spáni

nú er rétti tíminn til að kaupa
allt að 50% afsláttur
www.spanarhus.is  


Hús merkt * veita afslátt
til Félaga VM

Cabo Roig

  • Penthouse íbúð
  • 2
  • 70

  • Verð fyrir vikuna
  •  
  • 290€
  • 390€


Sækja um leigu

Fylltu út upplýsingar um þig og tímabil hér að neðan.

  • Upplýsingar
  • Tímabil
  • Skoða lausa daga

Stórglæsilegt íbúðarhótel sem staðsett er á besta stað í Cabo Roig rétt fyrir utan Torrevieje nánar tiltekið í hverfi sem heitir Aqua Marina.

Um er að ræða "penthose íbúð" sem er á 3 hæð. Íbúðin er fullbúin og allur frágangur eins og best verður á kosið. Í íbúðinni eru tvö svefnherbergi og einnig er svefnsófi í stofunni og er því gistiaðstaða fyrir allt að 6 manns. Sérsmíðaðar innrettingar eru í öllum fataskápum svo hægt sé að hafa allt í röð og reglu. Loftkælingar eru í öllum rýmum sem bæði hita og kæla. Einkaþaksvalir fylgja íbúðinni og þar er mjög góð aðstaða fyrir sóldýrkendur. Á þaksvölum eru sólbekkir, stólar og borð og einnig útisturta. Mjög gott sjávarútsýni er af þaksvölum, sést alla leið til La Manga. Íbúðin er rúmgóð með opnu eldhúsi sem er fullbúið tækjum. Þvottavél, uppþvottavél, eldavél, brauðrist, kaffivél og einnig fylgir hárblásari og strauborð. Í stofunni er LCD sjónvarp með öllum helstu stöðvum fyrir allan aldur (Sky sport fyrir fótboltaunnendur). Hljómflutningsgræjur með tengi fyrir iPod, usb, CD spilari og Dvd spilari. Út frá stofunni er gengið út á stórar svalir. Falleg sundlaug er í garðinum með barnalaug. Á inngangshæð hótelsins er móttaka sem opin er allan sólarhringinn. Mjög rúmgott bílastæði fylgir í kjallara og er það staðsett á besta stað. Lyfta er í húsinu. Staðsetningin er afargóð enda hefur það jafnan verið talið að Aqua Marina hverfið séð það best staðsetta hverfi Costa Blanca strandarinnar. Öll þjónsta er í sömu götu og má þar nefna veitingastaði, bari, banka, apótek, heilsugæslu og matvörumarkaði sem opnir eru allan sólarhringin. Aðeins um 300 metrar að sjó eða 5 mín. gangur að fallegri sandströnd en þar er einnig að finna fallega smábátahöfn. Falleg gönguleið er meðfram strandlengjunni sem nær alveg að Torrevieja í norður og til Mar Menor sem liggur að La Manga til suðurs. Fyrir golfspilara þá eru um 20 vellir í 5 mín. til 30 mín. akstursfjarlægð. Fyrir fótboltaunnendur þá er hægt að sjá þá stóru í leik á móti Real Murcia, en þeir unnu sér sæti í efstu deild (ca. 30 mín. akstur). Verslunarmiðstöðvar og úrval skemmtigarða eru í næsta nágrenni. Það má því segja að íbúðarhótelið sameini það frjálsræði sem fylgir því að vera í sínu eigin húsnæði en samt geta notið þeirra þæginda sem hótel hefur upp á að bjóða. Njóttu þess besta sem Spánn hefur upp á að bjóða á eigin vegum.

Staðfestingargjald er 20% leiguverðs sem greiðist við bókun og er óafturkræft. 
Greiða þarf leigu að fullu eigi síðar en einum mánuði fyrir upphaf leigutímans.
Þrif íbúðar við brottför eru ekki innifalin í verði.


Sjá kort af Cabo Roig Spain 

Sumarhús, orlofshús og leiguíbúðir á Spáni, íbúðir til leigu á spáni. www.spann.is


Myndir