Sumarhús á spáni - Orlofshús á spáni - Hús á spáni - Leiguíbúðir á spáni - Íbúðir til leigu á spáni  
Spanish | English | Íslenska
 

Sértilboð


Hús til sölu á spáni

nú er rétti tíminn til að kaupa
allt að 50% afsláttur
www.spanarhus.is  


Hús merkt * veita afslátt
til Félaga VM

La Manga Strip

  • Íbúð
  • 2
  • 82

  • Verð fyrir vikuna
  •  
  • 390€
  • 490€


Sækja um leigu

Fylltu út upplýsingar um þig og tímabil hér að neðan.

  • Upplýsingar
  • Tímabil
  • Skoða lausa daga

Lúxusíbúð á einstökum stað út á La Manga rifinu (La Manga strip) á ströndinni.

Íbúðin hefur upp á að bjóða útsýni sem er ómetanlegt. Beggja vegna eru höf oftast kölluð “dos mares” en það er Miðjarðarhafið og innhafið Mar Menor sem er eitt stærsta náttúrulega heilsulón í heiminum.

Íbúðin er á 8 hæð og er með góðum svölum. Í íbúðinni eru tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi, glæsilegt eldhús sem er vel tækjum búið og góð stofa/borðstofa. Öll húsgögn eru mjög vönduð og nýtískuleg. Mikið er lagt upp úr góðum rúmum með gæða dýnum svo að allir verða úthvíldir að morgni dags en svefnrými er fyrir 4. En þess ber að geta að gistirými er fyrir allt að 6 manns. Góður svefnsófi er í stofu sem rúmar tvo. Loftkæling er í íbúðinni.
Sérstæði er í bílageymslu og í blokkinni eru tvær hraðskreiðar hátæknilyftur. Mynd dyrasími er í íbúðinni og til marks um öryggi fyrir leigendur þá er óþarfi að vera með bankahólf þar sem að hurðin á íbúðinni er eins og í Deutsche Bank. Sjónvarp með öllum helstu stöðvum fyrir allan aldur (Sky sport fyrir fótboltaunnendur). Hljómflutningsgræjur með dvd, tengi fyrir iPod, og cd spilara.

Sundlaugargarðurinn er magnaður en þar eru þrjár sundlaugar. Garðurinn er mjög barnvænn þar sem að gervigras er í öllum garðinum og því engin hætta á að börn né fullorðnir slasist. Það er óhætt að segja að það sé stutt á strönd. Staðsetningin er góð þar sem stutt er í alla mögulega þjónustu. Besti veitingastaður á La Manga rifinu er hinum megin við götuna og einnig er örstutt í matvörubúð og bakarí. 9 holu golfvöllur er við hliðina og svo er stutt í hin fræga golfvöll La Manga Club en þar æfa einnig stærstu knattspyrnulið Evrópu að jafnaði á undirbúningstímabilinu. Stutt á völlinn hjá Real Murcia og sjá þá stóru spila. Rétt hjá íbúðinni er snekkjubátahöfn og einnig eru fullt af verslunarmiðstöðvum í Murcia.

Það er einstök upplifun að vera á La Manga rifinu og er ólíkt öðrum stöðum þar sem að friðsældin og kyrrðin er alveg mögnuð. Njóttu þess að vera í fríi á eigin vegum á Spáni í fimm stjörnu umhverfi. Hönnun, frágangur og staðsetning sem á fáa sína líka.

Sjá kort af La Manga Spain

Sumarhús, orlofshús og leiguíbúðir á Spáni, íbúðir til leigu á spáni. www.spann.is