HOF Stórglæsilegt raðhús í nýju hverfi í Cabo Roig rétt fyrir utan Torrevieje.
Húsið er hið glæsilegasta jafnt utan sem innan og er á þremur hæðum. Stofa, baðherbergi m/sturtu, eldhús . Út frá stofunni er hægt að opna út á verönd þar sem góð aðstaða er til þess að borða úti eða fá sér kaffisopa. Í eldhúsinu er hurð út í lokað flísalagt rými þar sem er góð grillaðstaða. Á annari hæð eru þrjú svefnherbergi og eitt baðherbergi. Á 3 hæðinni eru útsýnis svalir með sjávarútsýni, sést alla leið til La Manga. Þar er mjög góð sólbaðsaðstaða líka og gott að vera. 6 hágæða sólbekkir fylgja íbúðinni. Einnig er bílastæði í sameiginlegri bílageymslu. Gott skipulag og vel rúmt fyrir 6 manns, en þess ber að geta að 8 geta hæglega sofið í húsinu. Mjög góður svefn sófi er í stofu sem rúmar tvo. Og ef ungabarn er með í ferð þá fylgir einnig mjög gott ferðarúm sem hægt er að koma fyrir í hjónaherbergi. Mikið er lagt upp úr að væntanlegir gestir fái fyrsta flokks rúm. Það er mikilvægt að geta fengið góðan svefn og verið úthvíldur og því var ekkert sparað í þeim efnum. Sérsmíðaðar innréttingar eru í öllum fataskápum svo hægt sé að hafa allt í röð og reglu. Hof er við hliðina á Sólbakka og hentar því vel þegar taka þarf tvö hús á sama tíma.
Af helstu græjum sem fylgja í húsinu ber að nefna: Sjónvarp með öllum helstu stöðvum fyrir allan aldur (Sky sport fyrir fótboltaunnendur). Hljómflutningsgræjur með dvd, tengi fyrir iPod, og cd spilari. Þú getur meira að segja horft á RÚV og fylgst með íslenskum fréttum. Uppþvottavél, þvottavél, eldavél, blandari, brauðrist, kaffivél, strauborð og hárblásari. Loftkæling er í húsinu og öryggiskerfi.
Garðurinn er snyrtilegur og allur flísaður. Sundlaugargarðurinn er glæsilegur og mjög barnvænn. Mjög snyrtillegur og gott að njóta sólarinnar þar frá morgni til kvölds. Gervigras er í garðinum sem er mjög góður kostur,
Staðsetningin er góð þar sem stutt er í alla mögulega þjónustu. Strönd, markaðir, matvörubúðir, barir, bankar, apótek, og fl.. Fyrir golfspilara þá eru um 20 vellir í 5 mín. til 30 mín akstursfjarlægð. Aquamarina er rétt hjá en þar eru fullt af góðum veitingastöðum. Verslunarmiðstöðvar og úrval skemmtigarða eru í næsta nágrenni. Njóttu þess besta sem Spánn hefur upp á að bjóða á eigin vegum.
Staðfestingargjald er 20% leiguverðs sem greiðist við bókun og er óafturkræft.
Greiða þarf leigu að fullu eigi síðar en einum mánuði fyrir upphaf leigutímans.
Þrif íbúðar við brottför eru ekki innifalin í verði.
Skoða
google kort 360°staðsetning
Sumarhús, orlofshús og leiguíbúðir á Spáni, íbúðir til leigu á spáni. www.spann.is
Spanish
English
Íslenska