Sumarhús á spáni - Orlofshús á spáni - Hús á spáni - Leiguíbúðir á spáni - Íbúðir til leigu á spáni  
Spanish | English | Íslenska
 

Sértilboð


Hús til sölu á spáni

nú er rétti tíminn til að kaupa
allt að 50% afsláttur
www.spanarhus.is  


Hús merkt * veita afslátt
til Félaga VM

Cabo Roig

  • Raðhús
  • 3
  • 88

  • Verð fyrir vikuna
  •  
  • 320€
  • 440€


Sækja um leigu

Fylltu út upplýsingar um þig og tímabil hér að neðan.

  • Upplýsingar
  • Tímabil
  • Skoða lausa daga

Stórglæsilegt raðhús í nýju hverfi í Cabo Roig rétt fyrir utan Torrevieje.  

Húsið er hið glæsilegasta jafnt utan sem innan og er á þremur hæðum. Stofa, baðherbergi m/sturtu, eldhús . Út frá stofunni er hægt að opna út á verönd þar sem góð aðstaða er til þess að borða úti eða fá sér kaffisopa. Í eldhúsinu er hurð út í lokað flísalagt rými þar sem er góð grillaðstaða.  Á annari hæð eru þrjú svefnherbergi og eitt baðherbergi. Á 3 hæðinni eru útsýnis svalir með sjávarútsýni, sést alla leið til La Manga.  Þar er mjög góð sólbaðsaðstaða líka og gott að vera.  6 hágæða sólbekkir fylgja íbúðinni.  Einnig er bílastæði í sameiginlegri bílageymslu.  Gott skipulag og vel rúmt fyrir 6 manns, en þess ber að geta að 8 geta hæglega sofið í húsinu. Mjög góður svefn sófi er í stofu sem rúmar tvo. Og ef ungabarn er með í ferð þá fylgir einnig mjög gott ferðarúm sem hægt er að koma fyrir í hjónaherbergi. Mikið er lagt upp úr að væntanlegir gestir fái fyrsta flokks rúm. Það er mikilvægt að geta fengið góðan svefn og verið úthvíldur og því var ekkert sparað í þeim efnum.  Sérsmíðaðar innréttingar eru í öllum fataskápum svo hægt sé að hafa allt í röð og reglu.  

Af helstu græjum sem fylgja í húsinu ber að nefna: Sjónvarp með öllum helstu stöðvum fyrir allan aldur (Sky sport fyrir fótboltaunnendur). Hljómflutningsgræjur með dvd, tengi fyrir iPod, og cd spilari.  Þú getur meira að segja horft á RÚV og fylgst með íslenskum fréttum.  Uppþvottavél, þvottavél, eldavél, blandari, brauðrist, kaffivél, strauborð og hárblásari.  Loftkæling er í húsinu og öryggiskerfi.

Garðurinn er snyrtilegur og allur flísaður.  Sundlaugargarðurinn er glæsilegur og mjög barnvænn.  Mjög snyrtillegur og gott að njóta sólarinnar þar frá morgni til kvölds.  Gervigras er í garðinum sem er mjög góður kostur,

Staðsetningin er góð þar sem stutt er í alla mögulega þjónustu.  Strönd, markaðir, matvörubúðir, barir, bankar, apótek, og fl.. Fyrir golfspilara þá eru um 20 vellir í 5 mín. til 30 mín akstursfjarlægð.  Aquamarina er rétt hjá en þar eru fullt af góðum veitingastöðum. Verslunarmiðstöðvar og úrval skemmtigarða eru í næsta nágrenni. Njóttu þess besta sem Spánn hefur upp á að bjóða á eigin vegum.

Staðfestingargjald er 20% leiguverðs sem greiðist við bókun og er óafturkræft. 
Greiða þarf leigu að fullu eigi síðar en einum mánuði fyrir upphaf leigutímans.
Þrif íbúðar við brottför eru ekki innifalin í verði.

Skoða
google kort 360°staðsetning

Sumarhús, orlofshús og leiguíbúðir á Spáni, íbúðir til leigu á spáni. www.spann.is