Íbúð í Torrevieja frábær staðsetning þar sem allt er í göngufæri svo sem Habaneras ein stærsti verslunarkjarni á costa blanca 8 min, Föstudagsmarkaðurinn 8 min, Vatnsrennibrautargarður Aquopolis 7 min, Miðbær Torrevieja 15 min, Ströndin 18 min. Íbúðin er með loftkælingu.
Íbúðin er á jarðhæð, um 60m2, góðar verandir eru beggja megin við húsið. Gott svefnpláss fyrir 6-7 manns. Tvö svefnherbergi, eldhús, stofa og sólstofa. Íbúðin er mjög vel útbúin, loftkælikerfi, þvottavél, eldavél með bakarofni, barnarúm, örbylgjuofn, nýtt útigasgrill, barnakerra o. fl. ofl. Einnig er hægt að leigja bíl sem fylgir íbúðinni fyrir mjög sanngjart verð, nýr barnastóll fylgir. Við erum með íslenska ríkissjónvarpið beint og hægt að hlusta á útvarpið, rás 1 og 2. Vel yfir 100 stöðvar. Mjög góður sameiginlegur sundlaugargarður, aðeins 20 metra frá íbúð. Um 10 íslendingaíbúðir eru í þessum kjarna. Einstaklega vel staðsett íbúð, aðeins um 15 mín gangur í miðbæinn, þar er gott tívolí, götumarkaður, verslanir, veitingastaðir. strendur og smábátahöfn. Aðeins 2-3 min. að ganga að nýjum mjög góðum börum með veitingar. Um 5 min ganga er í Habaneras mollið, og vatnsrennibrautagarðinn, og fleiri stórverslanir t.d. Carrefour. Í mollinu eru m.a. H & M, zara, C&A, Intersport, Jack and jones, mango, Bershka o.fl. Einnig eru staðir eins og KfC, Mcdonalds og burger king í 5-7 min í göngufæri, við hlið kfc er stór leiktækjasalur, einnig keilusalur, einnig á hinn geysivinsæla föstudagsmarkað. Pacha, stærsti froðu næturklúbburinn er í um 8 mín göngu o.fl næturklúbbar. Flogið er til Alicante, Torrevieja er í um 35 min. fjarlægð suður af Alicante.mörg flug eru í viku hverri á sumrin. Um 80 min að keyra til Benidorm.
ATH: Rauðir dagar í dagatali geta verið skipti dagar leitið nánari upplýsinga um lausa daga burkni(at)spann.is.
Aksturs leiðbeiningar að íbúð
Sjá staðsetningu með nágrennislýsingu
www.spann.is
Sumarhús á spáni - Orlofshús á spáni - Hús á spáni
Leiguíbúðir á spáni - Íbúðir til leigu á spáni
Forsíða |
Átt þú eign á Spáni | Um okkur | Flug | Bílaleigur | Ferðir frá flugvelli | Golf | Markaðir | Kort | Afþreying |
Póstlisti
Spanish
English
Íslenska