Íbúð við golfvoll.
Íbúðin er endaraðhús á einni hæð í frábæru hverfi í Villa Martin, 50 mín. akstur frá Alicante flugvelli.
Stutt í alla þjónustu s.s. banka, matvörubúð, apótek, veitingastaði ofl.
Ca.10 mín. á strönd, þrír góðir golfvellir í næsta nágrenni.
Það eru tvö svefnherbergi ( rúm f.fjóra ) sængur, koddar, rúmföt og rúmteppi.
Tvö baðherbergi , annað með sturtu og hitt með baðkari, handklæði fylgja.
Stór stofa og opið eldhús með borðbúnaði fyrir 6 ásamt kaffivél , brauðrist ofl. Þvottavél er í eldhúsi og snúrur á verönd. Sjónvarp, DVD tæki, útvarp með geislaspilara og ALARM þjófavörn. Loftkæling / hitun er í stofu.
Stór flísalagður garður út úr stofunni, garðhúsgögn og sólhlíf. Sameiginlegur sundlaugagarður, frábær aðstaða.
Sjá kort af Villa Martin
www.spann.is
Sumarhús á spáni - Orlofshús á spáni - Hús á spáni
Leiguíbúðir á spáni - Íbúðir til leigu á spáni
Spanish
English
Íslenska