Sumarhús á spáni - Orlofshús á spáni - Hús á spáni - Leiguíbúðir á spáni - Íbúðir til leigu á spáni  
Spanish | English | Íslenska
 

Sértilboð


Hús til sölu á spáni

nú er rétti tíminn til að kaupa
allt að 50% afsláttur
www.spanarhus.is  


Hús merkt * veita afslátt
til Félaga VM

Los Altos

  • Parhús
  • 3
  • 0

  • Verð fyrir vikuna
  •  
  • 390€
  • 390€


Sækja um leigu

Fylltu út upplýsingar um þig og tímabil hér að neðan.

  • Upplýsingar
  • Tímabil
  • Skoða lausa daga

3 herbergja íbúð staðsett í Dream Hills í
Los Altos hverfinu.

GOTT HÚS Á GÓÐUM STAÐ ÞAR SEM ALLT UMHVERFI ER RÓTGRÓIÐ. NETAÐGANGUR ER Í HÚSINU. UM 200 METRAR ER ÚT Í VIA PARK  ÞAR SEM FINNA MÁ VEITINGASTAÐI, PÖBBA OFL. AÐGANGUR ER AÐ 2 SUNDLAUGUM TVENNAR SVALIR, GÓÐ SÓLBAÐSAÐSTAÐA, AFNOT AF GOLFSETTI FYLGIR, UNNT AÐ GREIÐA LEIGUNA INN Á ÍSLENSKA REIKNING.
Húsið er endahús og er fyrir vikið með góða lóð þar sem öll lóðin er flísalögð og því öll aðstaða öll mjög góð. Í garðinum er einnig snókerborð og stórt og mikið sóltjald þar sem upplagt er að grilla og hafa huggulegt. Aðalinngangurinn inn í húsið er um yfirbyggða forstofu en frá henni er síðan unnt að ganga inn á neðstu hæðina sem skiptist í stofu – borðstofukrók - aflokað eldhús – svefnherbergi, með skápum og baðherbergi. Einnig er unnt að ganga úr eldhúsi út á veröndina sem er fyrir hornið á húsinu. Í stofu er flatskjár með fjöldann allan af erlendum rásum svo og RÚV en unnt er að ná gömlu góðu gufunni í sjónvarpið. Í öllum svefniherbergjum eru skápar og tvíbreið rúm eru í öllum herbergjum. Frá neðri hæðinni er stigi upp á efri hæðina en þar eru 2 svefnherb. með skápum og eitt baðherbergi. Frá öðru svefnherberginu er unnt að ganga út á rúmgóðar svalir þar sem eru borðstofuhúsgögn og góð aðstaða. Að lokum er síðan unnt að ganga upp á efstu hæðina sem eru þaksvalir yfir öllu húsinu en þar er útsýni
mjög gott í allar áttir. Svefnaðstaða er fyrir allt að 7 manns. Íbúðin er með loftkælingu. 

Skoða
Google kort 360° og þú gengur um nágrenið
Sundlaugar og skemmtigarður
Dagvöruverslun
VIA PARK III
Sjá kort af Los Altos Spain
 


Myndir