Íbúð í Torrevieja frábær staðsetning þar sem allt er í göngufæri svo sem miðbær Torrevieja 10 min, Ströndin 15 min.
Skoða lausadaga sjá vinstrameginn link undir tímabil
Við sækjum þig á flugvöllin ef þú óskar eftir því.
- Húsið rúmar 5-6 manns
- 2 svefnherbergi
- Þvottavél
- 1 baðherbergi með sturtu
- sólabaðsaðstaða á þaki
- 15mín rölt niður á strönd
- Rólegt hverfi og stutt í alla þjónustu
- Hér geturðu sparað þér bílaleigubílinn
Íbúðin er 3 hæð í blokk. Hún skiptist í stofu, eldhús, baðherbergi og tvö svefnherbergi og er um 60m2.
Annað herbergið er með tveimur rúmum og góðum skáp en hitt með hjónarúmi og góðum fataskáp. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf og er með sturtu.
Í eldhúsi er ísskápur með frystihólfi, tauþvottavél, eldavél með bakarofni. Borðbúnaður er fyrir 6 manns.
Auk þess pottar og pönnur og annað tilheyrandi sem á að vera í eldhúsi.
Staðfestingargjald er 20% leiguverðs sem greiðist við bókun og er óafturkræft.
Greiða þarf leigu að fullu eigi síðar en einum mánuði fyrir upphaf leigutímans.
Þrif íbúðar við brottför eru ekki innifalin í verði.
Langtímaleiga 600 eu mánuðurinn með rafmagni og vatni.
Skoða
google kort 360° og þú gengur um nágrenið
Forsíða |
Átt þú eign á Spáni | Um okkur | Flug | Bílaleigur | Ferðir frá flugvelli | Golf | Markaðir | Kort | Afþreying |
Póstlisti
Spanish
English
Íslenska