Íbúð í Torrevieja frábær staðsetning þar sem allt er í göngufæri svo sem Habaneras ein stærsti verslunarkjarni á costa blanca 8 min, Föstudagsmarkaðurinn 8 min, Vatnsrennibrautargarður Aquopolis 7 min, Miðbær Torrevieja 15 min, Ströndin 25 min. Húsið er endahús á annarri hæð og því bæði með garði og sólþaki.
Flug til Alicante sjá Flug
Skoða lausadaga sjá vinstrameginn link undir tímabil
Við sækjum þig á flugvöllin ef þú óskar eftir því.
- Húsið rúmar 5-6 manns
- 2 svefnherbergi
- Þvottavél
- 1 baðherbergi með sturtu
- sólabaðsaðstaða á þaki og við sundlaug
- Frír aðgangur að hverfissundlaug
- 25 mín rölt niður á strönd
- 8 mín ganga að Habaneras verslunarmiðstöðinni
- Rólegt hverfi og stutt í alla þjónustu
- Hér geturðu sparað þér bílaleigubílinn
Íbúðin er efri hæð í raðhúsi. Hún skiptist í stofu, eldhús, baðherbergi og tvö svefnherbergi og er um 50 m2. Íbúðin er með loftkælingu.
Annað herbergið er með tveimur rúmum og góðum skáp en hitt með hjónarúmi og góðum fataskáp. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf og er með baðkari og sturtu.
Í eldhúsi er ísskápur með frystihólfi, tauþvottavél, eldavél með bakarofni. Borðbúnaður er fyrir 6 manns.
Auk þess pottar og pönnur og annað tilheyrandi sem á að vera í eldhúsi og að auki er kolagrill upp á sólpalli.
Í stofu eru 2ja og 3ja sæta sófar, borðstofuborð og 4 stólar, lítil hillusamstæða með glösum, digital móttökubox . Í lofti eru loftviftur eru í öllum herbergjum.
það eru rúmföt fyrir öll rúm, tveir umgangar. Auk þess baðhandklæði, minni handklæði, tuskur og viskustykki. Teppi á rúmum. Þó er gert er ráð fyrir að gestir komi með sín eigin handklæði til að nota við sólböð.
Sólbekkir fyrir 4 eru á þaki ásamt borði og stólum. Sundlaugargarðurinn er lokaður á tímabilinu nóv - feb. ár hvert en þar er mjög góð sundlaug og aðstaða til að liggja í sólbaði og hafa það gott.
Staðfestingargjald er 20% leiguverðs sem greiðist við bókun og er óafturkræft. Greiða þarf leigu að fullu eigi síðar en einum mánuði fyrir upphaf leigutímans.
Þrif íbúðar við brottför eru ekki innifalin í verði.
Skoða
google kort 360° og þú gengur um nágrenið
Bækling / Aksturs leiðbeiningar að íbúð
Sjá staðsetningu með nágrennislýsingu
3. glæsilegir golfvellir nálæt okkur:
La Finca - Villamartin - Las Ramblas
Nánari upplýsingar á Spain info um þessa golfvelli:
www.spann.is /
Sumarhús á spáni - Orlofshús á spáni - Hús á spáni
Leiguíbúðir á spáni - Íbúðir til leigu á spáni
Spanish
English
Íslenska