Signýjarstaðir er notarlegt og velbúið raðhús í rólegu hverfi sem heitir Lomas de Cabo Roig. Í húsinu eru 3 svefnherbergi og svefnpláss fyrir allt að 7 manns. Húsið er í lokuðum garði þar sem aðeins er aðgangur fyrir húsráðendur og gesti.
Hverfið er í um 10 km akstursfjarlægð frá Torrevieja. Öll þjónusta er í nágrenninu og stendur húsið rétt upp við glæsilega golfvelli sem laða að fólk allst staðar úr heiminum. Stutt er á ströndina og aðeins nokkurra mínútna akstursfjarlægð að Habaneras sem er ný og glæsileg verslunarmiðstöð. Kjötverslun, vínbúð, matvöruverslun, banki, og barir eru í um 5 mínútna göngufæri frá húsinu. Innifalinn er aðgangur að glæsilegum sundlaugagarði sem tilheyrir sameign hússins.Húsið er byggt árið 2007 og hefur svefnaðstöðu fyrir allt að 7 manns.Neðri hæð Stofa, eldhús, tvær verandir sitt hvoru megin við útganga, baðherbergi og svefnhverbergi.Efri hæð,Tvö svefnhverbergi, annað þeirra með útgengt á svalir (hjónaherb), hitt svefnherb með tveimur rúmum. Einnig baðherbergi með sturtubaði. Af þessari hæð er stigi upp lítið solarium sem er á toppi hússins.Húsið leigist út fullbúið. Með ísskáp, þvottavél, sjónvarpi, DVD spilara, CD spilara, borðbúnaði, sængum, koddum og sængurfatnaði. Allur útbúnaður hússins er glænýr eins og húsið sjálft.
Staðfestingargjald er 20% leiguverðs sem greiðist við bókun og er óafturkræft.
Greiða þarf leigu að fullu eigi síðar en einum mánuði fyrir upphaf leigutímans.
Þrif íbúðar við brottför eru ekki innifalin í verði.
Skoða
google kort 360°staðsetning
Spanish
English
Íslenska