Húsið er í Torrevieja í hverfi sem heitir La Rosa Leda. Gatan er Calle Echegaray nr 78 og húsið er merkt "Casa de Stefan" Það er raðhús og stíllin er dálítið "márískur" á 2 hæðum með sólþaki , húsið er miðjuhús tvö hús sitthvoru megin.
Maður kemur inn í húsið beint frá götunni. Það er dálítill flísalagður "garður" fyrir framan húsið með borði og stólum. Skuggi á morgnana þar til að drekka kaffi og heilsa vegfarendum, mjög kósý. Maður kemur inn í forstofu sem er opin í eldhúsið, þar er þvottavél, sturtan og ísskápur gott pláss til að henda af sér. Svo er eldhús með gashellum og ofni. Opið og þætilegt með stækkanlegu borði til að matast.
Þá kemur maður inn í gang og þar er WC og vaskur og geymsla inn af klóinu.
Þá kemur maður inn í stofu með hornsófa og rúmi upp við stigann.
frá stofunni er garðstofa og út frá garðstofunni er flísalagður garður með stóru borði og stólum og þar fyrir utan er sundlaug 10 metrar lögn og 4 metra breið. Gaman að borða þar á kvöldin og skugginn færist yfir frá kl 15 um það bil. Uppi eru tvö svefnherbergi annað hjónaherbergi með fataskápum og hítt köllum við gestaherbergi með hjónarúmi og 90 m breiðu rúmi ásamt fataskáp. baðherbergi á annarihæðinni. Uppi á þakinu er trékofi með hjónarúmi og einbreiðu.
loftkæling er í stofu og viftur í öllum loftljósum ásamt 2 auka viftum á veturna höfum við ráðlagt fólki að nota gashitara sem kostar um 15 evrur á mánuði í staðin fyrir háan rafmagnkostnað en loftkælingin getur einnig virkað sem hitablástur.
Í nágreni við húsið eru nokkrir matsölustaðir og vinnsæll sportbar. Það er nýlenduvöruverslum og slátrari þetta allt er á næsta götuhorni. Strætu stoppar rétt hjá sem fer niður í bæ eða á La Mata ströndina. það er lítil skemmtileg strönd í 250 metra fjarlægt og Los Locos er í 800 metra fjarlægt tekur um 10 mín að ganga. Vinnsæll matsölustaður 222 er við Los Locos, á Locos ströndinni er pallur úti í sjó til að leika sér í og hægt er að kaupa bekki með skólhlíf og hjólabátaleiga.
Matsölustaðir eru ódýrir í nágreninu t.d. á Frutales og hjá Gloríu er hægt að fá mat dagsins fyrir 4 evrur svo eru 2 sænskir góðir matsölustaðir nálægt með rétt dagsins fyrir 7,5 evur. Það er 10 góðir matsölustaðir á innan við 800 metra radíus.
Staðfestingargjald er 20% leiguverðs sem greiðist við bókun og er óafturkræft.
Greiða þarf leigu að fullu eigi síðar en einum mánuði fyrir upphaf leigutímans.
Þrif íbúðar við brottför eru ekki innifalin í verði.
Skoða
google kort 360° og þú gengur um nágrenið
Forsíða |
Átt þú eign á Spáni | Um okkur | Flug | Bílaleigur | Ferðir frá flugvelli | Golf | Markaðir | Kort | Afþreying |
Póstlisti
Spanish
English
Íslenska