Sumarhús á spáni - Orlofshús á spáni - Hús á spáni - Leiguíbúðir á spáni - Íbúðir til leigu á spáni  
Spanish | English | Íslenska
 

Sértilboð


Hús til sölu á spáni

nú er rétti tíminn til að kaupa
allt að 50% afsláttur
www.spanarhus.is  


Hús merkt * veita afslátt
til Félaga VM

La cinuelica

  • Íbúð
  • 2
  • 65

  • Verð fyrir vikuna
  •  
  • 250€
  • 360€


Sækja um leigu

Fylltu út upplýsingar um þig og tímabil hér að neðan.

  • Upplýsingar
  • Tímabil
  • Skoða lausa daga

2 Svefnherbergja íbúð Falleg íbúð á efri hæð stór einkasólbaðsaðstaða er á þaki, þar sem er frábært að liggja í sólinni út af fyrir sig. Afgirtur garður með 2 góðum sundlaugum og barnalaugum. Frábær staðsetning, ekki þörf á bifreið, þar sem öll þjónusta er í gögnufæri. Um 10 mínútna gangur er niður á Punta Prima ströndina. Um 10 - 15 mínútna akstur er á 3 stórum golfvöllum, Villa Martin, Las Ramblas og Campoamor. Go Kart braut er í göngufæri, Fjöldi frábæra veitingastaða allt í kring. 

Við sækjum þig á flugvöllin ef þú óskar eftir því.
- Húsið rúmar 4-6 manns  
- 2 svefnherbergi
- Þvottavél
- 2 baðherbergi annað með sturtu
- sólabaðsaðstaða á þaki og við sundlaug
- Frír aðgangur að hverfissundlaug
- 10 mín rölt niður á strönd
- Rólegt hverfi og stutt í alla þjónustu
- Hér geturðu sparað þér bílaleigubílinn

 Tveggja svefnherbergja íbúð á efri hæð 65 fm íbúð ásamt 27 fm sólbaðsaðstöðu á þaki með útsýni til sjávar. Íbúðin er fullbúin. Sameiginlegur sundlaugargarður með tveim sundlaugum, ásamt spark- og körfuboltavelli í grenndinni, stæði í bílakjallara. Stutt er í alla þjónustu s.s. matvöruverslun 7 mín, matsölustaði 5-10 mín, strönd 10 mín göngufæri. Þrír golfvellir eru í nágrenninu. Stutt er með bíl til Torrevieja 5 mín einnig verðlaunastrandir (blue flag of Europe)allt um kring. Í húsinu er loftkæling / Hiti Gervihnattasjónvarp Sólbaðsaðstaða Sundlaugagarður.  Innan við 10 mín ganga að strönd Golfvöllur innan 10 mínútna aksturs Miðbæjarkjarni í göngufæri 

Staðfestingargjald er 20% leiguverðs sem greiðist við bókun og er óafturkræft. Greiða þarf leigu að fullu eigi síðar en einum mánuði fyrir upphaf leigutímans. Þrif íbúðar við brottför eru ekki innifalin í verði þrif eru 60 eu fyrir per tímabil.

Skoða 
google kort 360° og þú gengur um nágrenið
Sundlaugar og skemmtigarður
Dagvöruverslun
VIA PARK III

3. glæsilegir golfvellir nálæt okkur: La Finca - Villamartin - Las Ramblas
Nánari upplýsingar á Spain info um þessa golfvelli:


Myndir