Sumarhúsið á Playa Flamenca
Fallegt og vel útbúið hús á rólegum stað á Las Piscinas svæðinu, Playa Flamenca.
- Húsið rúmar 6 manns
- 3 svefnherbergi
- Þvottavél
- 2 baðherbergi 1 með sturtu
- Sólabaðsaðstaða á þaki og við sundlaug
- Frír aðgangur að hverfissundlaug (eigin lykill)
- 15 mín ganga Mercadona dagvöruverslun
- Rólegt hverfi og stutt í alla þjónustu
Á jarðhæð er eldhúsið / borðstofa með útdraganlegu borði + 4 stólum. Stofan er með 3 sófum, 2 loftviftum, Sky gervihnattarmóttakara með 36 rásum og DVD spilara, 1 svefnherbergi með tvöföldu rúmi/1 og hálf breidd, skúffum og snögum fyrir föt auk viftu, og WC.
Eldhúsið er með öllum nútíma þægindum, kæliskáp með frysti, keramik helluborði, bakarofni, örbylgjuofni, kaffikönnu, hitakönnu, samlokugrilli & þvottavél í innréttingunni.
Úti; Stór verönd framan við húsið með stækkanlegu matarborði og stólum, lítið bílastæði er við hliðina á húsinu.
Á annari hæð; Hjónaherbergi með nýju “King size” rúmi, loftkælingu og svalir úti með borði og stólum; herbergi 3 er með 2 aðskildum rúmum (má setja saman), bæði herbergin með góðum klæðaskápum og skúffum; baðherbergi er með baði og sturtu, hárþurrku, og skápa fyrir handklæði og snyrtivörur. Öll svefnherbergi eru með lausar viftur eða viftur í lofti.
Þriðja hæð (þak) er með rúmgóðu, flísalögðu sólbaðsrými með fallega yfirsýn á umhverfið; sólbekkir, borð og stólar.
Sameiginleg stór sundlaug (eigin lykill) er við hliðina á húsinu.
15 mínútna gangur er í Mercadona stórmarkaðinn, veitingahús og bari. 10 mínútna akstur er á þrjá stóra golfvelli í nágrenninu. U.þ.b.1500 metrar eru á Playa Flamenca og La Zenia strandirnar.
Vinsamlegast – hafið með ykkar eigin strand-og sundlaugarhandklæði. 10 mín akstur (7 km) er í bæinn Torrevieja.
Umsjónamaður þrifa og lykilhaldari hússins er í húsinu við hliðina.
Svefnherbergi 1 uppi - 1 Stórt “King size” hjónarúm
Svefnherbergi 2 uppi – 2 stök rúm / má setja saman
Svefnherbergi 3 niðri - 1 tvöfalt rúm / 1 og hálf breidd
Spanish
English
Íslenska