VIÐ STRÖNDINA Benidorm.
Lúxus íbúðarbygging sem byggð er eins og lítið þorp.
Villa Marina er við enda Levante strandarinnar, útsýnið er stórkostlegt yfir miðjarðarhafið og friðsæld mikil þar sem sjávarniðurinn heyrist vel.
Íbúðin er á tveimur hæðum stofa, eldhús, snyrting og terras niðri.
Á efri hæð eru 2 svefnherbergi fataskápar í báðum, annað með sér svölum. baðherbergi og baðkar með sturtu. Svefnpláss fyrir 4.
Fullbúið lítið eldhús, uppþvottavél þvottavél og örbylgjuofn.
Rúmgóð stofa vel búin húsgögnum og góðar svalir þar sem hægt er að njóta lífsins til fulls, hvort sem er til sólbaða eða sitja og njóta útsýnisins.
Sjónvarp, dvd og hljómflutningstæki eru í íbúðinni
Sameiginleg sundlaug er við hliðina á íbúdinni og sólbekkir. Bílastæði við
íbúðina, innkeyrsla lokuð (Hlið) Vaktmenn eru 24 tíma í bygginguni.
5 mínútútna gangur er niður á Levante ströndina.
Í íbúðinni er loftkæling og öryggishólf.
ATH: Rauðir dagar í dagatali geta verið skipti dagar leitið nánari upplýsinga um lausa daga burkni(at)spann.is.
Við komu greiðast 50 Evrur vegna þrif við brottför.
Handklæði rúmfatnaður og viskustykki fylgja.
Athugið að einnig er hægt að fá aðra íbúð sem er eins á sama stað ef fleiri en ein fjölskylda óskar eftir að vera á sama stað.
Spanish
English
Íslenska