Til leigu glæsilegt raðhús á Orihuela ströndinni við Cabo Roig. Þetta er afar vel búin og heimilisleg eign, aðeins notuð af eigendum þar til nú. Íbúðin er staðsett 200 metra frá ströndinni. Ekki þarf að hafa bíl frekar en fólk vill þar sem stutt er í alla þjónustu og veitingastaði. Íbúðinni tilheyrir mjög fallegur sundlaugagarður. Húsið er einstaklega vel staðsett, stutt á ströndina, fallegar gönguleiðir við sjóinn, mikið af veitingastöðum í göngufæri og stutt á golfvelli (4 vellir í 10 mín. fjarlægð).
Við sækjum þig á flugvöllin ef þú óskar eftir því.
Íbúðin er í raðhúsi. Hún skiptist í stofu, eldhús, baðherbergi og tvö svefnherbergi. Íbúðin er með loftkælingu í svefnherbergjum og stofu.
Annað herbergið er með tveimur rúmum sem eru fyrsta flokks og góðum skáp en hitt með hjónarúmi (fyrsta flokks tempur dýna) og góðum fataskáp. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf og er með baðkari og sturtu.
Í eldhúsi er ísskápur með frystihólfi, uppþvottavél, eldavél með bakarofni. Borðbúnaður er fyrir 8 manns og allur eldhúsbúnaður eins og best gerist. Að auki er gasgrill á verönd bak við hús, tengt við eldhúsið en þar eru garðhúsgögn sem bjóða upp á aðstöðu fyrir borðhald (mjög hugguleg aðstaða).
Í stofu er 3ja sæta sófi, borðstofuborð og 6 stólar, hillusamstæða vel búinn af glösum, sjónvarp og DVD. Til er vifta á fæti í húsinu sem hægt er að stinga í samband . Það eru rúmföt fyrir öll rúm, tveir umgangar. Auk þess eru sængur fyrir 6. Baðhandklæði, minni handklæði, tuskur og viskustykki, eru til staðar. Teppi á rúmum. Þó er gert er ráð fyrir að gestir komi með sín eigin handklæði til að nota við sólböð. Sólbekkir fyrir 4 eru á þaki eða verönd bak við hús ásamt borði og stólum. Einnig eru stólar og borð á verönd fyrir framan húsið.
Staðfestingargjald er 20% leiguverðs sem greiðist við bókun og er óafturkræft. Greiða þarf leigu að fullu eigi síðar en einum mánuði fyrir upphaf leigutímans.
Þrif íbúðar við brottför eru ekki innifalin í verði þrif eru 60 eu fyrir per tímabil.
Tryggingagjald er 25.000 ísl og er endurgreitt við skil á lyklum, og ef ekkert kemur uppá.
Spanish
English
Íslenska