Forsíða |
Átt þú eign á Spáni | Um okkur | Flug | Bílaleigur | Ferðir frá flugvelli | Golf | Markaðir | Kort | Afþreying |
Póstlisti
Hús til sölu á spáni
nú er rétti tíminn til að kaupa
allt að 50% afsláttur
www.spanarhus.is
Hús merkt * veita afslátt
til Félaga VM
Aquapolis vatnagarðurinn er mjög góður fjölskyldugarður í Torrevieja. Þar er að finna allar gerðir af vatnsrennibrautum og leiktækjum fyrir stóra jafnt sem smáa. Nánari upplýsingar:
Vatna og skemmtgarður er mjög góður krakka fjölskyldugarður í Torrevieja.
Þar er að finna vatnsrennibrautir og leiktækji. Nánari upplýsingar: Google map
Einnig er vatnagarður í Ciudad Quesada rétt fyrir ofan Torrevieja Aquapark Rojales þessi garður er ódýrari en aðrir garðar keyrt er upp hjá Habaneras keyrt er á milli saltvatnanna á veg merkt Crevillent um það bil 15 - 20 km í áttina til Rojales.
Ozone leiktækjasalurinn er við hliðina á Habaneras verslunarmiðstöðinni og þar er geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi. Þar er stærðar keilusalur með 25 brautum, mikill fjöldi leiktækja, veitingastaða og bíósala. Google map
Í Torrevieja er lítið tívolí staðsett við höfnina. Google map
Go-Cart braut þar sem hægt er keyra á erfiðri braut á góðu verði. Brautin er við N-332 sveitaveginn og er við hliðina á Carrefour versluninni. Nánari upplýsingar: Google map
Pola Park skemmtigarðurinn er í Santa Pola ( 30 mínútna akstur) fyrir norðan Torrevieja. Þar er að finna ókeypis skemmtun sérstaklega fyrir yngstu kynslóðina. Hoppurólur, hoppukastalar, klessubílar, bátar, rennibrautir, minigolf og margt fleira. Nánari upplýsingar:
Rio Safari dýragarðurinn er á milli Santa Pola og Elche (35 mínútna akstur). Þar er að finna margar tegundir villtra dýra en einnig er þar að finna ýmsar aðrar tegundir af dýrum. Nánari upplýsingar:
Safari Aitana dýragarðurinn er rétt fyrir norðan Alicante og er hægt að keyra í gegnum hann. Til þess að komast að honum er best að fara áleiðis til Villajoyosa og fylgjast svo með merkingum sem vísa á garðinn. Bannað er að fara út úr bílunum og ekki heldur að hafa rúðurnar opnar. Þarna eru líka svæði þar sem hægt er að ganga um og komast í snertingu við dýrin. Einnig er þarna skemmtilegur leikvöllur fyrir krakka. Þetta er góður fjölskyldugarður sem gaman er að heimsækja. Nánari upplýsingar:
Terra Mitica skemmtigarðurinn er rétt hjá Benidorm og það tekur rúmlega klukkustund að keyra þangað. Þetta er stærsti skemmtigarðurinn á Spáni og þar eru allar tegundir af tækjum og ýmsar sýningar í gangi allan daginn. Nánari upplýsingar:
Terra Natura ævintýragarðurinn er rétt hjá Benidorm, við hliðina á Terra Mitica. Í þessum garði er hægt að kynnast lífinu til forna í Ameríku, Asíu og Evrópu auk þess sem þarna er eftirlíking af Pangea sem talin er hafa verið heimsálfan sem samanstóð af öllum núverandi heimsálfum. Þarna eru sett á svið eldgos, náttúruharmfarir, sýnd dýr sem löngu eru útdauð og svo mætti lengi telja. Einnig er lítill vatnsrennibrautargarður þar sem hægt er að leika sér að vild. Nánari upplýsingar:

Skemmtilegar og fræðandi gönguferðir á vegum göngufri.is
Fallegar og fjölbreyttar gönguleiðir. Ótrúleg friðsæld og hrikaleg náttúrufegurð einkenna þetta svæði. Forn menning, átakasaga, ávaxtatré, ilmandi kryddjurtir og daglegt líf í litlum og rólyndislegum fjallaþorpum. Þetta svæði, sem er óþekkt flestum ferðamönnum og mörgum Spánverjum líka, er aðeins í 35 mínútna aksturs fjarlægð frá einum fjölmennasta ferðamannastað Spánar. Við erum alltaf að bæta við nýjum gönguleiðum, hverri annarri skemmtilegri og fallegri.
Við gjörþekkjum meira en 30 gönguleiðir á þessu svæði og getum sniðið göngufríið að öllum getustigum. Yfirleitt göngum við á sæmilegum stígum, ferðirnar taka 5-7 klst í allt. Flestar gönguleiðir eru 12-16 km langar. Hækkun er breytileg í hverri ferð, frá 200-1200 metrar.
Haustin eru uppskerutími. Möndlur, fíkjur, vínber, epli, brómber, avokadó og kaki eru meðal þess sem við sjáum á göngu okkar. Möndlutínsla ef óskað er. Alltaf besta verðið miðað við gæði og innihald.
Við hefjum göngudaginn yfirleitt um kl 09:00 og komum heim milli 15:00 og 16:00
Gist er í litlum og snyrtilegum fjallahótelum og borðaður er góður spænskur sveitamatur.
Öll herbergi með sér baði.
www.gongufri.is
Golfferðir - Golfkennsla
Golfkennsla fyrir hópa eða einstaklinga bókum tíma
á golvelli eða úbúum golfpakka allt frá byrjendum til lengra komna.
Sækjum aktursþjónusta til og frá gististað.
Nánari upplýsingar:
Burkni Aðalsteinsson Famkvæmdastjóri
Netfang: burkni@spann.is
Sími: 861 3053
Svanþór Þorbjörnsson Golfkennari
Netfang: svanthor@internet.is
Sími: +34 672990029 (es)
Sími: +354 8925829 (is)
Áhugaverðar rútuferðir um svæðið
http://www.coachtripsonline.com/home.html
http://www.viajesrosatours.com/
Áhugaverðar siglingar um svæðið
http://www.gandiatravel.com